Norðurljósasýningin
Hvar, hvenær, hvernig og hvers vegna
Norðurljósasýningin okkar inniheldur meiri fróðleik en meirihluti fólks mun nokkru sinni vita.. Með ljósmyndir, skýringarteikningar og texta að vopni, förum við saman í ferðalag og skoðum allar hliðar Norðurljósanna.

Ferðin hefst inni í miðju sólarinnar og skoðar þá krafta og orkugjafa sem knýja sólkerfið. Svo kynnum við okkur sólvindinn og hvernig hann spilar aðalhlutverkið í að mynda á endanum norðurljósin.

Svo dáumst við að fegurð norðurljósanna utan úr geimnum og ferðumst til plánetanna, þar sem við finnum út hvort ljós, sambærileg við norðurljós jarðar, finnist einnig þar.

Við lærum um þá flóknu þætti sem mynda varnir jarðar gegn skaðlegri geislun frá sólinni og hvernig þeir í samspili við sólvindinn fara að því að mynda hin stóekostlegu norðurljós.

Að lokum dáumst við að norðurljósum jarðar í allri sinni dýrð. Stærð þeirra, formi, hreyfingu og litum. Einnig finnum við út hvernig á að finna þau og ljósmynda..
